Qigong lífsorka
heilun og gleði
Grunnur að heilsu og hamingju. Viltu læra og njóta?
Námskeið 16. mars 2024 kl. 13-17 í sal Robe joga setursins á Garðatogri Garðabæ
Einstakt tækifæri til að læra magnaðar Qigong lífsorkuæfingar, ásamt jákvæða gefandi lífsmátanum. Allir njóta í samræmi við sinn líkamlega styrk.
Kynning og dæmi um stutta Qigong æfingu hér. Flest fyrirtæki og stéttarfélög styrkja heilsueflingu.
Qi (Chi) er lífsorkan. Í 5.000 ár hafa Kínverjar stundað Qigong til heilsueflingar og til lækninga. Æfingarnar byggja á djúpri Qigong öndun, mjúkum og styrkjandi hreyfingum, í samhljómi við nærandi hugleiðslu. Þær heila og styrkja líkamlegt og andlegt heilbrigði. Í æfingunum er áhersla á brosið og jákvæðni. Við tökumst betur á við erfiðar tilfinningar, s.s. sorg, reiði, stress og ótta. Æfingarnar eru mjög heilandi, opna á orkubrautirnar, losa um spennu, styrkja ónæmiskerfið og alla innri starfsemi líkamans. Við höfum orku til að njóta lífsins enn betur.
Þorvaldur Ingi Jónsson mörg undanfarin ár haldið fjölda Qigong námskeiða og leiðir æfingarnar. Hann hefur undanfarin 13 ár sótt námskeið hjá mörgum Qigong meisturum. Hann er einn höfunda íslensku Qigong bókarinnar, Gunnarsæfingarnar.
Námskeiðið í sal: Garðabæ - Garðatog, Robe yoga setrið. Gengið inn á torgið vinstra megin við Lyfju.
Með námskeiðinu fylgir stuðningur á netinu í 45 daga og einnig netnámskeiðið með I og II Qigong námskeiðunum. Te, kaffi og léttar veitingar fylgja yfir daginn.
Verð: 14.900 kr. Ef bókað er bæði á námskeiðin 13. og framhald 14. janúar þá er afsláttarverð 24.900 kr.
Kynning á framhaldi 17. mars
Ef þú hefur áhuga eða spurningu sendu þá póst strax á Þorvald, netfang thor.ingi.jonsson@gmail.com

Umsagnir:
Vigdísi Finnbogadóttir fv. forseti:
„Af eigin reynslu er mér ljúft að mæla með Þorvaldi sem frábærum leiðbeinanda fyrir þá sem hafa huga á að kynna sér Qigong til að viðhalda góðri lífsorku og efla jákvæða lífsafstöðu"
Sjá hér viðtal við Vigdísi frá árinu 2022.
Jóhanna Lárusdóttir ferðaleiðbeinandi hjá Travel Uninterrupted:
„Í september 2023 tók ég þátt í dásamlegu námskeiði „Qigong lífsorka, heilun og gleði“ Fyrir námskeiðið taldi ég mig hugsa nokkuð vel um líkama og sál, en þetta námskeið var ótrúlega lærdómsríkt og áhrifamikið. Námskeiðið hófst á afskaplega fróðlegum fyrirlestri. Ég sá ekki eftir að hafa tekið báða dagana því seinni daginn var farið enn dýpra í fræðin. Ég átti ekki von á því að verða svona heilluð og finna strax áhrifamátt Qigong. Einnig er mikill stuðningur í þeim gögnum sem fylgja námskeiðinu. Strax eftir námskeiðið upplifði ég frelsi og svo mikla gleði. Mér fannst ég sjá lífið í bjartara og betra ljósi. Mér fannst ég öðlast orku og kraft til að stuðla að eigin velferð og hamingju. Líf okkar er einstakt, við eigum bara einn líkama og það er mikilvægt að fara vel með hann. Mér finnst dásamlegt að geta hlúð að líkama og sál með Qigong lífskrafti."
Eggert Kaaber leikari og kennari: Sjá myndband.
Herdísar Pálu Pálsdóttur, fyrirlesari og fv. mannauðsstjóri:
"Eftir að hafa lengi vitað af Þorvaldi og Qigong æfingum undir hans stjórn fengum við hann með stutt innlegg og nokkrar æfingar á starfsdag í vinnunni og var mjög mikil ánægja með hann og æfingarnar. Þetta atriði byggði upp góða orku og gleði fyrir daginn. Í framhaldinu skellti ég mér á námskeið hjá Þorvaldi og get svo sannarlega mælt með því. Góð blanda hreyfingar, öndunar og hugleiðslu er frábær til að styðja við góða andlega og líkamlega heilsu og spekin á bak við Qigong styður vel við heilbrigða og jákvæða lífsafstöðu."